Framsetning efnis

monster

Getið alltaf send post á lexi@lexi.is 
Munið svo að skrá ykkur á postlistan til að fá þessar fréttir beint í tölvupóstinn.



Nýjustu fréttir

  • Smoken


    Sigurður Gylfa var ótvíræður sigurvegari í SCC mótinu um helgina.

    Þessi keppnisleði og ásetan er lykillinn af sigrinum.

    Enda finnst mannni varla passa að þessi mynd sé tekinn 2012 ??

    Nú þarf að kalla til gömlu kallana sem voru uppi á þessu tímabili.

    Jói Eysteins, Dói, Villi þorri (mætti í bláfjöll), Arnar Valsteins og fleiri toppar.

    Hér er linkur á video af keppninni.

     


  • Úrslit SCC Jósepsdal.

    Á sunnidaginn fór fram á Bolaöldusvæðinu fyrsta snjócrosscountrykeppnin af þremur sem haldnar verða í vetur. Hugmyndin með þessum keppnum var að bjóða upp á einfalt og skemmtilegt keppnisform fyrir sleðamenn þar sem aðalmálið væri skemmtileg keppni í einfaldri braut þar sem allir gætu keppt á jafnréttisgrundvelli. Það er óhætt að segja að þessi fyrsta keppni hafi tekist frábærlega. 24 keppendur voru skráðir til keppni á alls konar sleðum, ungum og öldnum auk þess sem keppendur voru á aldrinum 15 og upp undir fimmtugt. Tvær konur tóku þátt og stóðu sig frábærlega.

    Brautin byrjaði fyrir ofan motokrossbrautina og lá inn í Jósepsdal og lykkjaðist upp og niður um brekkurnar í dalnum. Talsvert hart færi var í brautinni og höfðu menn nokkrar áhyggjur af kælingu fyrir keppni. Það virtist þó ekki koma að sök þar sem brautin tættist fljótt upp sem dugði til að kæla sleðana.

     

    Í Meistaraflokki varð Guðmundur Skúlason í þriðja sæti, gamli gamli refurinn Vilhelm Þorri Vilhelmsson í öðru sæti og gamli refurinn Sigurður Gylfason rúllaði flokknum upp með yfirburðum og átti langhraðasta hring 8.50,8 í seinni umferð sem var 30 sek betri tíma en hjá næsta manni. Þess má geta að Siggi keyrði á 2003 módelinu af Lynxsleða sem sló ekki feilpúst allann daginn.

    Í B-flokki var það Elmar Jón Guðmundsson sem varð sigurvegari dagsins, annar varð Gunnar Björnsson og Steinn Árni Ásgeirsson. Í unglingaflokki kláraði Einar Sigurðsson daginn í fyrsta sæti, Hrannar Bjarki Hreggviðsson í öðru sæti og Emil Týr Þórsson lenti í því þriðja.

    Í kvennaflokki sigraði svo Eyrún Björnsdóttir en Svava Björk Gunnarsdóttir varð í öðru sæti.

    VÍK þakkar þeim feðgum Jonna og Stefáni fyrir samstarfið og öllum öðrum sem hjálpuðu til eða tóku þátt. Næsta keppni fer fram á Mývatni 17. mars og er full ástæða til bjartsýni á að þessar keppnir laði að sér fjölda þátttakenda í vetur.

    Kveðja,

    Keli

    Sno Cross Country samanlögð úrslit eru hér á Excel skjali og svo hér fyrir neðan er sitthvað fleira

    Lesa meira

  • Éljagangur


    Búið er að færa sleðaspyrnu og brettasýninguna upp í Hlíðarfjall.


  • SCC

    Vegna slæmrar veðurspár fyrir fyrirhugaðann keppnisdag í 1. umferð Sno Cross Country 2012 laugardaginn 4. febrúar hefur verið ákveðið að færa keppnina um einn dag yfir á sunnudaginn 5. febrúar.
    Á sunnudaginn er spáð flottu veðri og verður keppnin keyrð af fullu afli á sama tímaplani. Það eru flottar aðstæður uppfrá og hefur bætt í snjó, í Bláfjöllum hefur t.d. verið ófært í 2 daga svo nú er um að gera að mæta til leiks og þenja tugguna í snjónum í suðrinu !

    Muna að skrá sig á www.motocross.is !

     

    Kv. Jonni


  • Fyrsta keppnin


    Þá er komið að því, skráning er hafin í 1. umferðina í Sno Cross Country 2012 sem mun fara fram þann 4. febrúar við akstursíþróttasvæði VÍK í Bolaöldu. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta einskonar endurokeppnir fyrir snjósleða og er þetta tilraun snjósleðanefndar MSÍ til að sprauta lífi í keppnishald í sleðasportinu hér heima.

    Keppt verður í fjórum flokkum, Meistaraflokki, B flokki, Unglingaflokki og Kvennaflokki. Það þurfa að vera 5 í flokk til að hann telji til verðlauna. Allar vélarstærðir eru leyfðar í öllum flokkum nema að í unglingaflokki er 600cc hámark. Keyrðar eru tvær umferðir í hverri keppni og þá seinni umferðin öfugan hring. Allir flokkar fara á sama tíma á ráslínuna en Meistaraflokkur er ræstur 1 mínútu á undan restinni. Það verður hlaupandi start 20 m fyrir aftan hverja ráslínu að sleðanum. Meistaraflokkur keyrir í 2x 75 mínútur og hinir í 2x 45 mínútur.

    Skrá sig hér


  • Sleđaskólinn fyrir norđan og austan.


    Planað er að halda sleðaskólann á Akureyri 18 Febrúar og svo 19 Febrúar á Egilsstöðum.

     

    Ef þið hafið áhuga á að mæta, endilega kastið póst á lexi@lexi.is 


     


  • X Games er á fullu


    Fylgstu með X Games

    Hér er linkur á keppnina

     

    Ekki miss af þessu..


  • X Games Netkeppni


    Halldór Helgason er í Úrslitum um flottustu Brettamyndina.

    Í dag er seinasti dagur til að kjósa, láttu þitt atkvæði skipta máli.

    Kjóstu.....


  • SM í Svíţjóđ

    Victor Stenman
    Bein útsending frá Sm í Svíþjóð . Locan Cristian og Tucker Hibbert að keyra . Svo er ég nokkuð viss um að Íslandsvinurinn Victor Stenman er þarna líka .  Fylgist með hér

  • Snjóflóđahćtta .

     Þessi frétt sýnir hættu þess að "skera" fyrir ofan annan ökumann . Við þurfum að vera meðvitaðir um að taka ekki svona áhættur, kunna að þekkja og greina hættu á flóðum og vera með réttan búnað . Reglan er að allir komi heim !

     Frétt af Snowmobiler.com


  • SnoCross Country


    Fyrsta Mótið 2012 er planað á suðurlandi. 4 Feb.

    Þetta er ca 10 Km hringur ekinn í töluvert langann tíma. 2 moto, seinni umferð er ekin í öfuga átt.

    Þessi keppni gætið hentað öllum, hvort sem menn hafa langa eða stutta sleða.

    Gamlir eða ungir, vanir óvanir.

    Fylgist með...


     


  • LÍV Ferđin


    Smá myndband frá Lív ferðinni á laugardaginn.

    LÍV


  • Sleđaskólinn


    Sleðaskólinn verður settur á morgun í Bláfjöllum.

    Allt lítur vel út með veðurspá fyrir morgundaginn, nýr snjór og vonandi veður flott.

    Hvet alla að vera komna uppeftir um 9.30 til að vera sem fljótastir að gera klárt.

    Það er fyrirhuguð ferð hjá LÍV-R um Jósepsdal og við munum reyna að ná í skottið á þeim ef vel gengur.

    Endilega sendið póst ef þið ætlið að mæta.

  • Snjór í Jósepsdal og nágrenni


    Fínn snjór í Jósepsdal og nágrenni, vel pakkaður snjór og flottur grunnur, má snjóa aðeins í viðbót þá verður færið orðið alveg geðveikt, vantar pínu í toppana og efst í skemmtilegustu gilin.

    Þetta verður orðið fínt fyrir LÍV ferðina á laugardaginn sem er klukkan 12.00 - Hittingur í nágrenni Litlu Kaffistofunnar / Mótorcross brautina hjá VíK, allir sleðamenn velkomnir, vanir og óvanir. 

    kv. Kaldi Klúbburinn 


  • LÍV-R Fundur


    Næsti félagsfundir LÍV Reykjavík verður miðvikudaginn 18. janúar, Kletthálsi 1

    Dagskrá

    Hættur á fjöllum

    " mbl.is | 5.3.2011 | 19:31 Vélsleðamaðurinn sem björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa leitað að við Hrafntinnusker, í námunda við Landmannalaugar, í dag er fundinn og hefur leit því verið afturkölluð. Maðurinn fannst heill á húfi. "

    Hvað gerðist ? Þeir sem lentu í þessu atviki segja sögu sína og jafnframt fáum við að heyra hlið björgunarsveitar sem tók þátt í leitinni.

    Að lokum förum við yfir atvikið og drögum af því lærdóm sem mun nýtast okkur til ferða um hálendi Íslands.

    Kynning

    · Íslandsmót í Sno Cross Country í fyrsta sinn

    · Sleðaskólinn

    Síðan rennum við einu vel völdu myndbandi í gegnum tækið ef tími vinnst til.

    Stjórnin

  • Sleđaskólanum frestađ


    Vegna veðurs var ákveðið að fresta Sleðaskólanum um eina viku og reyna að lenda á betra veðri.

    Semsagt laugardaginn 21 Janúar.

    Þeir sem hafa áhuga geta sent póst og fylgst.

    Sleðaskólinn


  • Alaska púđur ..


     Hérna er smá " tease" fyrir soltna sleðamenn . Hel flott myndband úr púðrinu í Alaska. Njótið ;)

    Baaaap ! ! ! 


  • Pretty in Pink


    Baldur var að klára Pollann sinn

    866 Big Bore kit, nett moddaður og algerlega Pimpaður.

     

    Lesa meira

  • Sleđaskólinn


    Sleðaskólinn verður ekki á morgun laugardaginn 14 Jan.

    Veðurspá sýnir mikla rigningu á morgun og skoðum á morgun með sunnudaginn.

    En þeir sem vilja fylgjast með og fá upplýsingar sendar beint til sín, sendið tölvupóst í lexi@lexi.is

    Sleðaskólinn

     

     

     

     


  • Tröllasleđaferđ


    Tröllasleðaferð – 3 dagar, gisting, fullt fæði og leiðsögn
    Um er að ræða sleðaferð í 3 daga í Fljótum og nágrenni. Sleðast verður um norðanverðan Tröllaskaga með sínum margbrotnu fjöllum, dölum, skörðum og hásléttum. Leiðsögumaður verður með alla dagana. Gist er í rúmgóðu heilsárshúsi með heitum potti og innifalið er fullt fæði og uppábúin rúm. Þessi ferð hentar ekki byrjendum í sportinu heldur frekar nokkuð reyndum sleðamönnum á sæmilega öflugum sleðum sem langar að kynnast svæðinu.
    Fjarlægð frá Reykjavík: ca 350 km
    Aðstaða: Aðstaðan er öll hin besta en um er að ræða 150 fm nýuppgert hús með 5 herbergjum. Uppábúin rúm innifalin. Heitur pottur er á staðnum og allt til alls. Venjulega er hægt að keyra sleðana beint úr hlaðinu upp í fjöllin. Lesa meira

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning