Framsetning efnis

lexgames

Getið alltaf send post á lexi@lexi.is 
Munið svo að skrá ykkur á postlistan til að fá þessar fréttir beint í tölvupóstinn.



Nýjustu fréttir

  • Falinn fjársjóður til sölu


    Bílabúð Benna setndur fyrir því að moka út öllu hjólagammsi sem þeir eiga á lager.
    Allskonar fatnaður, varahlutir ofl tengt hjólamensku.
    10-70% afsláttur.


    Trial stunt, uppboð á flottum munum, bílasýning og grill í gangi fyrir alla.

    Hvetjum alla til að koma og gera frábær kaup á allskonar dóti.

    Sjá augl hjá Bílabúð Benna

     

    Lesa meira

  • Snæfellsnes Rallý

    Nú er skráning í gangi fyrir rallýið á snæfellsnesi.

    Skráning er á www.bikr.is

    Rallýjeppinn "Hvalurinn" er kominn aftur í umferð, heitir núna "Belginn"

    Nýliðateymið Lexi og Boggi munu stjórna þeim bíl í frumraun sinni  í Rallýið.

     


  • MXON styrktarmót

    Þá er búið að opna fyrir skráningu í bikarmótið sem fer fram á laugardaginn á Álfsnesi. Keppt verður í 4 flokkum og verður aðalatriðið að hafa gaman af deginum og sýna strákunum í landsliðinu að við stöndum á bakvið þá.

    Hér eru flokkarnir sem keppt verður í

    • Mx Open: MxOpen + Unglingaflokkur ( þeir sem treysta sér ) + bestu úr B og MX 2.
    • Mx85 + kvenna: Mx kvenna + 85kvk + 85 KK
    • Mx B: Bestu úr 85cc KK, Unglingaflokkur, +40 )
    • H(eiðursmenn)a: í þennan flokk má ekki skrá sig ef viðkomandi hefur keppt á Íslandsmóti sl tvö ár.

    Keppnin fer fram á laugardaginn milli klukkan 10 og 15. Hver flokkur keppir í 2 X 12 mín. Keppnisgjald er 4.000 á mann óháð stærð eða aldri.

    Í lokin verða öllum keppendum boðið að vera með í “Tvímenningsmoto”. Keppnisstjórn velur tvo saman í lið, vanan og óvanan, og hjóla þeir í 45 mínútna keppni. Hver keppandi hjólar tvo hringi og svo er skipt.

    Smelltu hér til að skrá þig


  • Sandspyrna


    Skráning er nú hafin í aðra umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram í landi Garðs við Sauðárkrók laugardaginn 28. ágúst. Það eru Bílaklúbbur Akureyrar og Bílaklúbbur Sauðárkróks sem halda þessa keppni. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 23. ágúst kl. 23:59.-

    Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér.

    F.h. Spyrnudeildar BA

    Garðar Garðarsson
    gg@ba.is

  • MX of Nations

    Stefán liðsstjóri tilkynnti liðið í MXoN í ár. Liðið samanstendur af tveimur stigahæstu keppendunum í MX-Open og þeim stigahæsta í MX2 og því þrír sterkustu ökumenn landsins í dag.  Liðið er byrjað að safna styrktaraðilum og hefur Icelandair nú þegar ákveðið að styrkja liðið um flugmiðana vestur til Denver.
    Mikill kostnaður verður í ár og hvetjum við fyrirtæki til að styðja þetta verkefni.

    Liðið er eftirfarandi

    • MX1 – Aron Ómarsson
    • MX2 – Eyþór Reynisson
    • MX-Open – Hjálmar Jónsson

  • Jett MX skór


    Suzuki er með umboð fyrir Jett MX skó.

    Nýjungar og léttleiki að fyrirrúmi parið er meira er en kíói léttari en helstu merkin.

    Hrikalega flottir , sjá umsögn

     


  • Ertu búinn að panta sleða..

    Hér eru 2011 sleðarnir

    Polaris

    Ski Doo

    Lynx

    Yamaha

    Arctic cat

     

    Endilega athugið með umboðin því það eru nokkur tilboð um að panta fyrirfram og tryggja góð verð.

     

     


  • MX á Akureyri

    Nú verður Íslandsmót í Motocrossi á Akureyri um helgi.

    Ein flottasta braut landsins og topp umgjörð.

    Hvet alla til að renna og sjá flotta keppni.

    uppl á www.kka.is

     


  • Endurócross Neskaupstað


    Góðan daginn myndir frá endurocross-keppninni sem haldin var á Neistaflugi

    1) Ármann Örn Sigursteinsson

    2) (Jonni) Jónas Stefánsson

    3) Ingvar frá Egilstöðum

     

    Skemmtileg keppni með mikið af óvæntum uppákomum kveðja Tómas

    Sjá myndir  Myndir Hörður


  • Heimboð KKA

    KKA í samvinnu við K2M og Nítró mun standa fyrir svokölluðu heimboði KKA

    Laugardaginn 31. júlí                                           Nitro            K2M - Allt 
fyrir sleða & hjólafólk.                                     

    Frítt í mótocross og endurobraut KKA. Allir að hjóla einsog engin sé morgundagurinn.

    sunnudaginn 1. ágúst 2010

    * Endurokennsla fyrir byrjendur. hefst kl: 10:00 upp við félagsheimili. Kennari Þorsteinn Hjaltason. Frítt.

    * Enduroferð K2M fyrir alla. ca 2-3 tímar. Mæting með hjól á kerru eða bíl upp við félagsheimili KKA kl:13:00

    * Torfærukeppni. á sunnudag kl. 18:00 ef stemmari og einhver fjöldi verður?

    Þjónusta:

    Tvö gasgrill verða uppí húsi. Fólk getur því grillað og notað húsið að vild.

    Ef einhver er í vandræðum með geymslu á hjóli yfir nótt meðan á Akureyrardvöl stendur þessa helgi, þá er bara að hafa    sambandi við Sigurð hjá Nítró Aku. s: 893-0409

    Bakvakt verður í Nítró ef eitthvað vantar. S:893-0409

    Nánari uppl: Siggi s: 893-0409, Stebbi Gull s: 662 5252 Birkir: 893 7917


  • X Games 16

    Ekki missa af veislunni.

    X Games er hafið.

    Travis Pastrana komin með enn eitt gullið

    Sjá X Games

    Hér er live stream af leikunum, bara fylgist með dagskrá og tímamismun.


  • Torfæra á AK


    Nú verður svaka torfæra á Akureyri um helgina.

    BA Klúbburinn vel virkur.


  • Sjalla Sandspyrnan

    Sjallsandspyrnan - SKRÁNING

    Skráning er nú hafin í fyrstu umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sunnudaginn 1. ágúst. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 26. júlí kl. 23:59.-

    Lesa meira

  • Red Bull X Fighters

    Svaka flott keppni í ár, Body Varial fullkomnuð.

     


  • Endurocross um Verslunarmannahelgina á útihátíðini Neistaflugi.

    Endurocrosskeppni/sýning verður haldin á Neistaflugi í Neskaupstað Laugardaginn 31 Júlí. Skráningar í síma 8683512, Ísak og á isakfannar@gmail.com
    Keppnisgjaldið er 3000kr og rennur það í peningaverðlaun til keppenda.

  • MX Sólbrekka

    Laugardaginn 10. júlí fer fram bikarmót í Sólbrekku, keppt verður í 85cc flokki, Kvennaflokki, B flokki og B 40+ flokki, Unglingaflokki og MX Open (MX2 teljast með MX

    Open)

    Búið er að breyta Sólbrekkubraut og hefur akstursstefnu verið snúið við og er þetta mót haldið til þess að brautin teljist lögleg til Íslandsmeistarakeppni en 3. umferð Íslandsmótsins fer fram í Sólbrekku 24. júlí. Skráning í þessa keppni fer fram á msisport.is og stendur skráning opin til miðnættis fimmtudaginn 8. júlí. Keppnisgjald er 3000 fyrir 85cc, 4000 fyrir alla aðra flokka nema MX Open en þar er keppnisgjaldið 5000 Tímatökubúnaður MSÍ verður notaður á þessari keppni og fyrir þá sem eiga ekki senda er bent á Nítró með leigusenda.

    Brautin verður í toppstandi og er þetta keppni sem engin keppandi í Íslandsmótinu má láta fram hjá sér fara.

    Sjáumst hress á laugardaginn.

    kv. Mótstjórn VÍR.


  • Torfæra á Egistöðum


    Torfæra verður um helgina á Egilstöðum

    Sjá auglýsingu


  • Úrslit af Lex Games


    Smellið á www.lexgames.is fyrir myndir video og úrslit.


  • Leggjum málinu lið

    Sælir allir !

     

    Með því að fara á eftirfarandi link er hægt að mótmæla algjörlega órökstuddum lokunum á fornum hálendisleiðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs www.f4x4.is/motmaeli/

     

    Þetta er búsáhaldabylting þeirra sem unna ferðalögum á hálendinu.


  • Kort og dagskrá

    Hér er kort og dagskrá af LEX Games 2010

     

    Lesa meira

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning