Flýtilyklar
Grenivík 12.01
Allnokkrir sleðahausar skelltu sér á Grenivík í dag, 12.01.08 og nýttu rjómablíðuna í smá leik og tilkeyrslu.
Það er eilítið minni snjór en við áttum von á uppi, vantar enn eitt gott hret fyrir hengjur en þó tilvalið í að liðka sleðavöðvana og taka útsýnishring.
Menn voru almennt að taka af á öðrum palli og þaðan tóku við smá þræðingar upp en svo varð þetta nokkuð gott.
Læt fylgja með eins og eina mynd frá deginum.







