Flýtilyklar
Landmannalaugar
Fórum í frábæru veðri í Laugarnar í gær, 13 mars.
Eyddum deginum í giljunum innaf Landmannalaugun en þar er eitt alskemmtilegasta sleðasvæði á Suðurlandi. Krefjandi gil og skorningar fyrir fjallasleðana ásamt dölum og hengjum. Ekki spillir fyrir að það safnast flott púður á þetta svæði og ósjaldan er logn þó það blási allt í kring.
Björn






