Fréttatilkynning

Ís-Cross í Reykjavík
2. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram laugardaginn 20. febrúar við Leirtjörn v/ Úlfarsfell, Reykjavík. Skráning fer fram á www.msisport.is og er skráning opin til miðnættis á fimmtudagskvöld 18. febrúar.
Mæting keppenda er kl. 10:00, tímatökur hefjast kl: 11:00 en keppnin sjálf kl: 12:00
Allur akstur á Leirtjörn er bannaður fram að keppni.
Öll umferð á tjörninni er bannaður á keppnisdag fyrir utan keppendur og starfsmenn.
Áhorfendum er bent á bílastæði við vestur enda tjarnarinnar og gott útsýnissvæði við suð-vestur endan. Áhorfendur og keppendur eru beðnir að leggja bílum þannig að ekki hljótist ónæði fyrir aðra vegfarendur.
Leirtjörn og umhverfi er í eigu Reykjavíkurborgar og er svæðið mikið notað til útivistar og biðjum við alla sem leggja leið sína á keppnina að ganga vel um og skilja ekki eftir drasl á svæðinu.
--
Karl Gunnlaugsson
Formaður
MSÍ /
Mótorhjóla & Snjósleðaíþróttasamband Íslands






