Lexi.is

Smoken
Sigurður Gylfa var ótvíræður sigurvegari í SCC mótinu um helgina.

Þessi keppnisleði og ásetan er lykillinn af sigrinum.

Enda finnst mannni varla passa að þessi mynd sé tekinn 2012 ??

Nú þarf að kalla til gömlu kallana sem voru uppi á þessu tímabili.

Jói Eysteins, Dói, Villi þorri (mætti í bláfjöll), Arnar Valsteins og fleiri toppar.

Hér er linkur á video af keppninni.

Úrslit SCC Jósepsdal.
Á sunnidaginn fór fram á Bolaöldusvæðinu fyrsta snjócrosscountrykeppnin af þremur sem haldnar verða í vetur. Hugmyndin með þessum keppnum var að bjóða upp á einfalt og skemmtilegt keppnisform fyrir sleðamenn þar sem aðalmálið væri skemmtileg keppni í einfaldri braut þar sem allir gætu keppt á jafnréttisgrundvelli. Það er óhætt að segja að þessi fyrsta keppni hafi tekist frábærlega. 24 keppendur voru skráðir til keppni á alls konar sleðum, ungum og öldnum auk þess sem keppendur voru á aldrinum 15 og upp undir fimmtugt. Tvær konur tóku þátt og stóðu sig frábærlega.

Brautin byrjaði fyrir ofan motokrossbrautina og lá inn í Jósepsdal og lykkjaðist upp og niður um brekkurnar í dalnum. Talsvert hart færi var í brautinni og höfðu menn nokkrar áhyggjur af kælingu fyrir keppni. Það virtist þó ekki koma að sök þar sem brautin tættist fljótt upp sem dugði til að kæla sleðana.

Í Meistaraflokki varð Guðmundur Skúlason í þriðja sæti, gamli gamli refurinn Vilhelm Þorri Vilhelmsson í öðru sæti og gamli refurinn Sigurður Gylfason rúllaði flokknum upp með yfirburðum og átti langhraðasta hring 8.50,8 í seinni umferð sem var 30 sek betri tíma en hjá næsta manni. Þess má geta að Siggi keyrði á 2003 módelinu af Lynxsleða sem sló ekki feilpúst allann daginn.

Í B-flokki var það Elmar Jón Guðmundsson sem varð sigurvegari dagsins, annar varð Gunnar Björnsson og Steinn Árni Ásgeirsson. Í unglingaflokki kláraði Einar Sigurðsson daginn í fyrsta sæti, Hrannar Bjarki Hreggviðsson í öðru sæti og Emil Týr Þórsson lenti í því þriðja.

Í kvennaflokki sigraði svo Eyrún Björnsdóttir en Svava Björk Gunnarsdóttir varð í öðru sæti.

VÍK þakkar þeim feðgum Jonna og Stefáni fyrir samstarfið og öllum öðrum sem hjálpuðu til eða tóku þátt. Næsta keppni fer fram á Mývatni 17. mars og er full ástæða til bjartsýni á að þessar keppnir laði að sér fjölda þátttakenda í vetur.

Kveðja,

Keli

Sno Cross Country samanlögð úrslit eru hér á Excel skjali og svo hér fyrir neðan er sitthvað fleira

Éljagangur
Búið er að færa sleðaspyrnu og brettasýninguna upp í Hlíðarfjall.

SCC
Vegna
slæmrar veðurspár fyrir fyrirhugaðann keppnisdag í 1. umferð Sno Cross Country
2012 laugardaginn 4. febrúar hefur verið ákveðið að færa keppnina um einn dag
yfir á sunnudaginn 5. febrúar.
Á sunnudaginn er spáð flottu veðri og verður
keppnin keyrð af fullu afli á sama tímaplani. Það eru flottar aðstæður uppfrá
og hefur bætt í snjó, í Bláfjöllum hefur t.d. verið ófært í 2 daga svo nú er um
að gera að mæta til leiks og þenja tugguna í snjónum í suðrinu !

Muna að skrá
sig á www.motocross.is !

Kv.
Jonni

Fyrsta keppnin
Þá er komið að því, skráning er hafin í 1. umferðina í Sno Cross Country 2012 sem mun fara fram þann 4. febrúar við akstursíþróttasvæði VÍK í Bolaöldu. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta einskonar endurokeppnir fyrir snjósleða og er þetta tilraun snjósleðanefndar MSÍ til að sprauta lífi í keppnishald í sleðasportinu hér heima.

Keppt verður í fjórum flokkum, Meistaraflokki, B flokki, Unglingaflokki og Kvennaflokki. Það þurfa að vera 5 í flokk til að hann telji til verðlauna. Allar vélarstærðir eru leyfðar í öllum flokkum nema að í unglingaflokki er 600cc hámark. Keyrðar eru tvær umferðir í hverri keppni og þá seinni umferðin öfugan hring. Allir flokkar fara á sama tíma á ráslínuna en Meistaraflokkur er ræstur 1 mínútu á undan restinni. Það verður hlaupandi start 20 m fyrir aftan hverja ráslínu að sleðanum. Meistaraflokkur keyrir í 2x 75 mínútur og hinir í 2x 45 mínútur.

Skrá sig hér