LÍV-R Fundur

Næsti félagsfundir LÍV Reykjavík verður miðvikudaginn 18. janúar, Kletthálsi 1
Dagskrá
Hættur á fjöllum
" mbl.is | 5.3.2011 | 19:31 Vélsleðamaðurinn sem björgunarsveitarmenn Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa leitað að við Hrafntinnusker, í námunda við Landmannalaugar, í dag er fundinn og hefur leit því verið afturkölluð. Maðurinn fannst heill á húfi. "
Hvað gerðist ? Þeir sem lentu í þessu atviki segja sögu sína og jafnframt fáum við að heyra hlið björgunarsveitar sem tók þátt í leitinni.
Að lokum förum við yfir atvikið og drögum af því lærdóm sem mun nýtast okkur til ferða um hálendi Íslands.
Kynning
· Íslandsmót í Sno Cross Country í fyrsta sinn
· Sleðaskólinn
Síðan rennum við einu vel völdu myndbandi í gegnum tækið ef tími vinnst til.
Stjórnin






