MX of Nations
Almennt - mánudagur 9.ágú.10 09:24 - Vefstjóri - Lestrar 228 - Athugasemdir (0)
Stefán liðsstjóri tilkynnti liðið í MXoN í ár. Liðið samanstendur af tveimur stigahæstu keppendunum í MX-Open og þeim stigahæsta í MX2 og því þrír sterkustu ökumenn landsins í dag. Liðið er byrjað að safna styrktaraðilum og hefur Icelandair nú þegar ákveðið að styrkja liðið um flugmiðana vestur til Denver.
Mikill kostnaður verður í ár og hvetjum við fyrirtæki til að styðja þetta verkefni.
Liðið er eftirfarandi
- MX1 – Aron Ómarsson
- MX2 – Eyþór Reynisson
- MX-Open – Hjálmar Jónsson







