Framsetning efnis

vatn

Fréttir

1. Umferð í Snocrossi í Reykjavík

WPSA sirkusinn mætti suður, TTK hélt loksins var mót á flatlendinu og það í MX brautinni í Bolöldu. Enda loksins komin snjór.
Frábært veður var í dag og svakalega kalt, brautin var alger þrekvirki sem unnið af sameiginlegau átaki margra ósérhlífna manna og var unnið myrkra á milli til að láta þetta gerast.

Hér er smá lýsing af keppninni

Unglinga flokkur
Róleg byrjun á vetrinum í þeim flokki eins og oft áður. En harðastir voru Bjarki Sigurðsson á Polaris og Hafþór Grant á Ski doo, þeir voru að bítast í dag, en Bjarki sýndi frábæra takta og ofur stöðugleika og var öruggur í öllum hítum, hann endaði daginn á toppnum og sigraði flokkinn, þar á eftir var Hafþór Grant og svo Árni Ásbjarnar á Arctic cat. Von er á fleirum unglingum í næstu keppni.

Dömuflokkur.
7 Stelpur mættu á ráslínu í fyrsta móti í snocrossi fyrir stelpur, þær voru frábærar og stóðu sig mjög vel. Svala byrjaði daginn af krafti tók holuskotið í fyrsta híti og leiddi pakkann, en Berglind á Polaris og Villa Dan voru ofur beittar, Halla hans Finns byrjaði daginn vel en fékk einn sleða í bakið á stóra pallinum en slapp við meiðsli en var róleg eftir það. Í úrslitahítinu þá var ræst en nokkrar héldu að það yrði stoppað vegna þjófstart, en maður má aldrei stoppa hehe, Villa Dan varð öftust í startinu, Svala og Hulda Þorgils voru framalega, en Berglind og Villa fóru að sigla í gegnum hópin, og svo voru þær komnar fremst, síðar þá tók Villa Dan frammúr Berglindi og hélt foristu til loka, mikill kraftur í henni og seigla, Berglind varð önnur og Svala var í 3 sæti þangað til hún drap á sleðanum í einu stökkinu og Dísa á polaris ók aftaná hana og þær sátu fastar saman í smá stund, þá nýtti Hulda sér gatið og tók 3 sæti og hélt til loka.
Til hamingju með flokkin og fyrstu keppnina.

Sportflokkur
Hörku stuð að vanda, Baldvin Gunnars á Polaris var gríðarbeittur á fyrsta ári í sport og var nánst með yfirburði í dag, svaka form á stráknum, en harðir kallar fylgja fast, Palli Snorra á Lynx er að takast að festa toppstykkið á búkinn og hlutir fara að ganga upp. Gummi Skúla kom eins og þruma og eyðilagði helling af sleðum og tæmdi Polaris umboðið til að halda sleðanum gangandi en það gekk upp, Ármann á AC var líka beittur í dagin, en þeta var fjölmennur hópur.
Baldvin byrjaði úrslitin gríðarvel og leiddi frá upphafi en eitthvað skemmdist í búkka um miðja keppni og þurfti að dóla til að klára keppnina, en að honum sótti af hörku Palli Snorra sem ók af list og stakk alla svo af Ármann Sigursteins var annar og Gummi Skúla sýndi að hann getur alveg ekið og kom mörgum á óvart, náði að halda 3 sæti þrátt fyrir að vera búinn að mökk skemma fjörðunina á Ohlins pollanum stebba Skíðamanns.  Þetta verður fjör að fylgjast með í vetur.

+35 Flokkurinn
Þessi flokkur kom einna mest á óvart, skemmitlegt action allan tímann, Gunni Hákonar á Yamaha var nú vænlegastur til að byrja með þótt hann væri yamma en "Gamla" sleðakempan Freyr Aðalgeirs kom sterkastur í byrjun og sýndi að með sýna takta og á nýjum Lynx er sko allt hægt, hann var beittastur í dag, en hann og Gunni voru með flotta baráttu alla keppnina, Jói Kef kom og nánast prufaði sleða fyrst daginn áður, hann hefur mikin áhuga á sportinu og lærir fljótt, Þór Kjartans var litríkur í dag, og gaman að fylgjast með, sprengdi oft af stað en missti oft dampinn, enda undir miklu álagi frá Stebba Gull Þul keppninar sem óspart minnti á þegar hann vann þór sjálfur í klifurkeppni, oft heyrðust öskur frá Þór og var hann lika að skilja við sleðann í brautinni. En í úrslitum spilaði allt saman, Gunni H náði holuskotinu og Þór annar, Freyr tók svo frammúr Þór og stefndi á Gunna, náði að taka frammúr honum og tók forystu og náði smá forskoti, síðna dettur þór af sleðanum og var smá tíma að komast af stað, þá voru Freyr og Gunni búnir að ná Þór aftur þegar hann leggur af stað, en þór var nú lítið til í að hleypa mönnum frammúr enda hatar að sjá menn fyrir framan sig, og þegar loksins þeir fara frammúr honum þá er 1 hringur eftir, og Gunni búinn að finna flotta línu sem hann nýtti til fulls og stökk upp að hlið Freys og náði innri línuni í 3 seinustu begjunni, en þá kræktust skíðin hjá þeim saman og þeir snúast og vísa báðir útúr battanum, Gunnar nær að losna vel, en Freyr prjónar uppá battan og veltir sleðum, svakalegur endapunktur, en allir voru komnir í mark þegar hann loks nær sleðanum af stað en samt var þá hring á undar Þór og endaði í 2 sæti og Þór í þriðja. Heyrst hefur frá enn fleiri mönnum að þeir ætli að mæta næst.

Pró Flokkur
Jonni á Lynx kom beittur að utan en menn voru samt vel jafnir í þessum flokk Brói á SKi Doo var beittur og Sæþór á AC byrjaði vel en missti dampinn. Ásgeir á AC lenti í vandræðum með búkka í úrslitum. Stessi á Polaris sýndi flotta takta í byrjun og tók startið í byrjun og sýndi flottann kraft og þol og sigraði keppnina, Jonni varð annar og svo Kom brói þar á eftir, en hann datt þegar hann var annar, þetta verður skemmtilegur flokkur að fylgjast með þvi allir virðast geta keyrt mjög flott, spurning með úthald og agann sem mun aðskilja.

Nú var nýtt fyrirkomulag keyrt, færri hít en lengri og var keppnin mjög skemmtileg.
Greinlegt var að bláa flaggið þarf að fara notast mikið nú þegar hítin eru lengri en það hefur ekki verið mikið vandamál hingað til, en WPSA gengið kom og gerði það sem það gerir best, halda flotta sýningu og passa ökumennina í brautinni.
Stebbi Gull var óborganlegur á hljóðnemanum og heillaði og hneykslaði allla á skemmtilega máta.

Endalausar þakkir til allra sem komu að þessu, og gerðu eina flottustu keppni í langan tíma.
Myndir koma fljótlega

LEXI



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning