Framsetning efnis

lexgames

Fréttir

MX Sólbrekka

Laugardaginn 10. júlí fer fram bikarmót í Sólbrekku, keppt verður í 85cc flokki, Kvennaflokki, B flokki og B 40+ flokki, Unglingaflokki og MX Open (MX2 teljast með MX

Open)

Búið er að breyta Sólbrekkubraut og hefur akstursstefnu verið snúið við og er þetta mót haldið til þess að brautin teljist lögleg til Íslandsmeistarakeppni en 3. umferð Íslandsmótsins fer fram í Sólbrekku 24. júlí. Skráning í þessa keppni fer fram á msisport.is og stendur skráning opin til miðnættis fimmtudaginn 8. júlí. Keppnisgjald er 3000 fyrir 85cc, 4000 fyrir alla aðra flokka nema MX Open en þar er keppnisgjaldið 5000 Tímatökubúnaður MSÍ verður notaður á þessari keppni og fyrir þá sem eiga ekki senda er bent á Nítró með leigusenda.

Brautin verður í toppstandi og er þetta keppni sem engin keppandi í Íslandsmótinu má láta fram hjá sér fara.

Sjáumst hress á laugardaginn.

kv. Mótstjórn VÍR.



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning