MXON styrktarmót
Almennt - föstudagur 27.ágú.10 18:47 - Vefstjóri - Lestrar 195 - Athugasemdir (0)
Þá er búið að opna fyrir skráningu í bikarmótið sem fer fram á
laugardaginn á Álfsnesi. Keppt verður í 4 flokkum og verður aðalatriðið
að hafa gaman af deginum og sýna strákunum í landsliðinu að við stöndum
á bakvið þá.
Hér eru flokkarnir sem keppt verður í
- Mx Open: MxOpen + Unglingaflokkur ( þeir sem treysta sér ) + bestu úr B og MX 2.
- Mx85 + kvenna: Mx kvenna + 85kvk + 85 KK
- Mx B: Bestu úr 85cc KK, Unglingaflokkur, +40 )
- H(eiðursmenn)a: í þennan flokk má ekki skrá sig ef viðkomandi hefur keppt á Íslandsmóti sl tvö ár.
Keppnin fer fram á laugardaginn milli klukkan 10 og 15. Hver flokkur keppir í 2 X 12 mín. Keppnisgjald er 4.000 á mann óháð stærð eða aldri.
Í lokin verða öllum keppendum boðið að vera með í “Tvímenningsmoto”. Keppnisstjórn velur tvo saman í lið, vanan og óvanan, og hjóla þeir í 45 mínútna keppni. Hver keppandi hjólar tvo hringi og svo er skipt.






