Tröllasleðaferð
Almennt - miðvikudagur 11.jan.12 11:59 - Vefstjóri - Lestrar 540 - Athugasemdir (0)

Um er að ræða sleðaferð í 3 daga í Fljótum og nágrenni. Sleðast verður um norðanverðan Tröllaskaga með sínum margbrotnu fjöllum, dölum, skörðum og hásléttum. Leiðsögumaður verður með alla dagana. Gist er í rúmgóðu heilsárshúsi með heitum potti og innifalið er fullt fæði og uppábúin rúm. Þessi ferð hentar ekki byrjendum í sportinu heldur frekar nokkuð reyndum sleðamönnum á sæmilega öflugum sleðum sem langar að kynnast svæðinu.
Fjarlægð frá Reykjavík: ca 350 km
Aðstaða: Aðstaðan er öll hin besta en um er að ræða 150 fm nýuppgert hús með 5 herbergjum. Uppábúin rúm innifalin. Heitur pottur er á staðnum og allt til alls. Venjulega er hægt að keyra sleðana beint úr hlaðinu upp í fjöllin. Fjöldi: 5-7 sleðamenn.
Kostnaður: 80.000 kr á mann
Matseðill:
Fimmtudagur: Kvöldkaffi.
Föstudagur: Morgunmatur: morgunkorn, brauð, ávextir , safi.
Nesti : Smurt brauð og súkkulaði
Kaffi og bakkelsi við heimkomu.
Kvöldmatur: Lasagna og meðlæti, eftirmatur.
Laugardagur: Morgunmatur: egg, beikon, pylsur, bakaðar baunir, safi.
Nesti: Smurt brauð og súkkulaði
Kaffi og bakkelsi við heimkomu.
Kvöldmatur: Lambalæri og allt tilheyrandi, eftirmatur.
Sunnudagur: Morgunmatur: morgunkorn, brauð, ávextir, safi.
Nesti: Smurt brauð og súkkulaði
Kaffi og meðlæti fyrir brottför.
*Aðrir drykkir og áfengi ekki innifalið
Dagskrá:
Þátttakendur koma sér á staðinn á fimmtudagskvöldi.
Dagur 1 (föstudagur): Farið yfir í Héðinsfjörð og Siglufjörð.
Dagur 2: (Laugardagur): Holtsd./Lágh./Svarfaðard./Heljardalsh.
Dagur 3: (Sunnudagur): Þrautir og æfingar í Fljótafjöllum.
*Skipulag getur tekið breytingum eftir veðri og snjóalögum.
Hafið samband í síma 8955626, lambanesreykir@gmail.com eða á Lambanesreykir á Facebook






