Lex Games
Jaðarsportleikar sem eru haldnir annað hvert ár.
Þar fær hver grein stutta stund til að vera með keppnir og sýningar og kynna sitt sport fyrir almenning.
Þarna verða sýningar og keppnir í sportum eins og:
Fjórhjólacross
Þétt ráslína af öflugum fjórhjólum sem keppa um holuskotsverðlaun (sá sem er fyrstur í fyrstu begju) og
Krakkakross
Ungir krakkar sem eru á námskeiðum hjá VÍK sýna getu á 65 og 85cc hjólum.
Motocross
Þar eru boðnir efstu einstaklingar í kvenna,unglinga, B- og Open
síðan eru um ca 10 boðin sæti. Aðeins 1 umferð. Holuskotverðlaun og cash.
Freestyle
Sýning þar sem nokkrir aðilar sýna stökk listir á Motocrosshjólum.
Drullupyttur á fjórhjólum
Mittisdjúpur pollur með nokrum hliðum útí og stóran stall sem þarf að komast uppá.
Bara skemmtun og drulla.
Downhill
Farið niður bratta brekku á svaka Downhill reiðhjólum, sá sem er með besta tímann vinnur.
Dirt Jump
BMX hjól fara í stutta braut fulla af stökkpöllum og setja saman bestu atrennuna.
BMX
Nokkrir af færustu BMX hjólamönnum landsins sýna listir sínar.
Trial
Sýning þar sem sýnt er þetta skemmtilega sport á sérgerðum Motorhjólum.
Listflugvélar
Nokkrar flottar listflugvélar verða með flotta flug sýningu.
Rally
Flottir og öflugir 4x4 Rallybílar mætast, einn stendur uppi.
Rallycross
Góð sýning þar sem öflugir bílar syna rallycross, með öllum látunum.
Torfæra
Öflugir torfærubílar keppast í tímaþraut um hver er fljótastur.







