Framsetning efnis

lexgames

LEX Games 09

lex09_haus 


29. Ágúst er dagur sem verður tileinkaður mörgum helstu jaðar og Mótorsportum á íslandi.

Þar fær hver grein stutta stund til að vera með keppnir og sýningar og kynna sitt sport fyrir almenning.
Þéttpökkuð dagskrá, X-ið sér um hörku tónlist allann daginn.
Síðan verður party á Sódóma Reykjavík um kvöldið þar sem Dr. Spock sér um að trilla gengið eftir daginn.
50.000kr verða í verðlaun fyrir hverja keppnisgrein. Dagskráin hefst kl 12.00.

Þarna verða sýningar og keppnir í sportum eins og:

Fjórhjólacross
Þétt ráslína af öflugum fjórhjólum sem keppa um holuskotsverðlaun
(sá sem er fyrstur í fyrstu begju) og 50.000 fyrir að sigra.

Krakkakross
Ungir krakkar sem eru á námskeiðum hjá VÍK sýna getu á 65 og 85cc hjólum.

Motocross
Þar eru boðnir efstu einstaklingar í kvenna,unglinga, B- og Open
síðan eru um ca 10 boðin sæti. Aðeins 1 umferð. Holuskotverðlaun og 50.000kr fyrir að sigra.

Freestyle
Sýning þar sem nokkrir aðilar sýna stökk listir á Motocrosshjólum.
 
Drullupyttur á fjórhjólum
Mittisdjúpur pollur með nokrum hliðum útí og stóran stall sem þarf að komast uppá.
Bara skemmtun og drulla.

Downhill
Farið niður bratta brekku á svaka Downhill reiðhjólum, sá sem er með besta tímann vinnur 50.000 kr.

Dirt Jump
BMX hjól fara í stutta braut fulla af stökkpöllum og setja saman bestu atrennuna. 50.000kr í verðlaun.
 

BMX
Nokkrir af færustu BMX hjólamönnum landsins sýna listir sínar.

Trial 
Sýning þar sem sýnt er þetta skemmtilega sport á sérgerðum Motorhjólum.



Listflugvélar
Nokkrar flottar listflugvélar verða með flotta flug sýningu.

Rally
Flottir og öflugir 4x4 Rallybílar mætast, einn stendur uppi. 50.000kr í verðlaun.

Rallycross

Góð sýning þar sem öflugir bílar syna rallycross, með öllum látunum.

Torfæra

Öflugir torfærubílar keppast í tímaþraut um hver er fljótastur.  50.000kr í verðlaun.

Hér má sjá Úrslit frá Lex Games 09

 

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning